Fótbolti.net
Fótbolti.net Fáskrúðsfirðingar. Mynd: Haukur Gunnarsson Njarðvík vann ótrúlegan sigur gegn Leikni Fáskrúðsfirði í 2. deild karla um síðustu helgi. Njarðvíkingar niðurlægðu Fáskrúðsfirðinga og skoruðu níu mörk gegn einu. Kenneth Hogg og Magnús Þórðarson skoruðu báðir þrennu. Njarðvíkingar leiddu með fimm mörkum þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks. Kenneth Hogg gerði fyrsta markið eftir fjórar mínútur og fjórum mínum síðar var Einar Orri Einarsson og Hogg báðir búnir að skora og staðan 3-0.