Yfir 100 látin í flóðum og skriðum á Indlandi
24.07.2021 - 00:25 Mynd: EPA-EFE - INDIAN NAVY Minnst 112 manns hafa látist í flóðum og aurskriðum í Maharashstra-ríki í vesturhluta Indlands og fjölda fólks er enn saknað. Monsún-regntímabilið stendur sem hæst á þessum slóðum og síðasta sólarhringinn mældist 594 millimetra úrkoma á Indlandi vestanverðu. Ár flæða víða yfir bakka sína og það gildir líka um síki og skipaskurði. Ríkisstjóri Maharashtra, Uddhav Thackeray, segir nauðsynlegt að hleypa vatni úr nokkrum stíflulónum og því þurfi að rýma byggð meðfram fljótum og skurðum sem ...