Fótbolti.net
Fótbolti.net Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð Millwall er að reyna að selja íslenska landsliðsframherjann Jón Daða Böðvarsson. Samkvæmt fjölmiðlamanninum Darren Witcoop þá er Millwall búið að bjóða félögum í ensku C-deildinni að kaupa Jón Daða og er áhugi á honum þar. Witcoop segir að Portsmouth og AFC Wimbledon hafi áhuga á Selfyssingnum. Hinn 29 ára gamli Jón Daði gekk í raðir Millwall 2019 en hann hefur ekki verið öflugur í markaskorun fyrir félagið. Hann er bara búinn að skora fimm mörk í 69 leikjum í Championship fyrir Millwall.