Draumabrúðkaupið í hættu í annað sinn
22.07.2021 - 23:11 Mynd: Grímur Jón Sigurðsson / RÚV Brúðhjón bíða með öndina í hálsinum eftir ákvörðun um hvort þau fái að halda brúðkaupsveisluna á laugardaginn kemur. Þau segja erfitt, en dæmigert, að fylgjast með fjölgun smita dagana fyrir draumabrúðkaupið, sem þau reyna nú að halda í annað sinn. Fólk sem fréttastofa tók tali í dag var ekki á einum málum um hvort nauðsynlegt væri að herða takmarkanir. Í veislusal einum í Kópavogi er unnið að því hörðum höndum að hella spritti í glös. Þar stendur til að halda glæsilega brú...
Source: ruv.is