Sósíalistaflokkurinn vill ókeypis auglýsingar
Sósíalistaflokkur Íslands krafði útvarpsráð í dag um ókeypis auglýsingatíma fyrir flokkinn til þess að leiðrétta halla fjárstyrksins sem ríkissjóður veitir flokkum með menn á þingi. Þetta kemur fram í bréfi flokksins til útvarpsráðs en afrit bréfsins var sent á fjölmiðla.