Hanna Björg og talsmaður Stígamóta funduðu með KSÍ
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, framhaldsskólakennari og formaður jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands, segist hafa komið með skömmum fyrirvara á fund stjórnar KSÍ í dag. Ásamt henni var þar talskona Stígamóta, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir. Hanna vildi ekki tjá sig um afsögn Guðna Bergssonar að svo stöddu.