Ingó veðurguð spilaði á Tenerife
Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, spilaði á veitingastaðnum Bambú bar & bistro í Adeje á Tenerife í gærkvöldi. Hringbraut greindi fyrst frá því í vikunni að staðurinn hefði auglýst tónleika með Ingó veðurguð en síðar var auglýsingin tekin út.
Source: mbl.is