Sveinn Aron Guðjohnsen kominn til Svíþjóðar
Sveinn Aron Guðjohnsen er kominn til Elfsborg í Svíþjóð. Hann skrifar undir samning til ársins 2024. Hinn 23 ára gamli Sveinn Aron kemur til Elfsborg frá ítalska félaginu Spezia. Hann eyddi síðustu leiktíð á láni hjá OB í Danmörku. Sveinn Aron á fjóra leiki að baki fyrir A-landslið Íslands. Al
Source: dv.is