Fær að ráða eigin lögfræðing og vill kæra föður sinn
14.07.2021 - 23:25 Mynd: http://www.billboard.com/files/s Mál bandarísku tónlistarkonunnar Britney Spears var tekið fyrir í dómstólum í Los Angeles í dag en fyrir þremur vikum síðan steig poppstjarnan fram og sagði farir sínar ekki sléttar en hún hefur verið undir forsjá föður síns í þrettán ár, eða frá árinu 2008. Fjöldi fólks safnaðist saman fyrir utan dómshúsið til að sýna Britney stuðning. Britney tók sjálf stuttlega til máls í dag. Hún var ekki á staðnum en gaf vitnisburð í gegnum síma. Söngkonunni lá mikið á hjarta og ítrekaði ...