Fótbolti.net
Fótbolti.net Spænska liðið var með mikla yfirburði en það er oft ekki nóg Mynd: EPA Sænska landsliðið sá ekki mikið af boltanum í markalausa jafnteflinu gegn Spánverjum í kvöld en Spánn var 85 prósent með boltann sem er nýtt met. Bæði lið sköpuðu sér góð færi í leiknum en þrátt fyrir að Svíar hafi lítið verið með boltann náði Alexander Isak að galdra upp tvö færi, fyrra sem hann skaut í stöng og svo var hann maðurinn á bakvið dauðafæri Marcus Berg.