Binni Glee verður fyrir aðkasti vegna holdafars síns
Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Brynjar Steinn Gylfason, betur þekktur sem Binni Glee, opnaði sig um þá fitufordóma sem hann verður fyrir. Brynjar segir meðlimi í fjölskyldu sinni og aðra í samfélaginu sýna sér mikla fordóma vegna holdafars. Brrynjar glímir við matarfíkn og hefur bæði þyngst og lést þau ár sem hann hefur verið í sviðsljósinu.
Source: mbl.is