Seinagangur stjórnvalda beri merki áhugaleysis
Fjöldi fólks gekk frá Hlemmi niður að Austurvelli í dag á samstöðufundi með afgönsku þjóðinni. Sema Erla Serdar, stjórnmála- og Evrópufræðingur og formaður Solaris, segir íslensk stjórnvöld hafa verið svifasein í aðgerðum til bjargar fólki frá valdaráni talíbana í Afganistan. Fundurinn var á vegum Solaris, Refugees in Iceland og No borders Iceland.
Source: mbl.is