Hringvegur og raflína í hættu við Jökulsárlón
13.07.2021 - 22:34 Mynd: Bjarni Rúnarsson / RÚV Flytja þarf raflínur og hringveginn austan Jökulsárlóns vegna ágangs sjávar. Strandlengjan hefur færst um tvo til fjóra metra á ári. Við hringveginn austan við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi hefur hafið fari óblíðum höndum um strandlengjuna. Frá árinu 1904 til ársins 2003 var rofið um 700 metrar, eða um átta metrar á ári. Seinustu ár hefur hægst heldur á rofinu vegna landriss. Þetta kemur fram í skýrslu Vegagerðarinnar og Siglingastofnunar um strandrof og strandvarnir við brúna yfir Jökulsá á Bre...